Seiðlæti - Vor

Copied!edit Lyrics
original text at lyrnow.com/2093012
Vör

Sem öndun lífsins, birtist hún öllu
Launhelgar ritar, hafi ég spurt
Létt eins og fiðrið, kelar hún lífið
Sem fjöður visku, veitir hún svör

Allt hún mér opnar, hafi ég hugrekki
Til þess að leita, sjá það sem er
Djúpt í því dulda, rennum við saman
Æðarnar þennjast, brennandi þrá

Svörin ég sæki, í uppsprettu mína
Í hennar vilja, svar mitt er
Hún þeytir mér upp, í glaðlyndi lífsins
Leysist ég upp, allar áttir í

Létt og fljótandi, svíf ég áfram
Í öllum þeim heimum, er tilheyri ég
Samtímis allstaðar, spurningum er svarað
Skýrleiki umfangsinns, ótrúlegur er

Að deilast í dulda, dali drauma
Þar dropi daggar, speglar mynd
Mörg er viskan, í vitleysu falin
Af sjálfri mér oft, ég opna hlátur
Hún opnar mér sýn, á sameiningu
Andstæðir pólar, verða ein heild
Engar eru andstæður, í einum heimi
Lífið frjósamt, samkennd er

Þar vil ég dvelja, löngum stundum
Hvort sem sú stund, varðar mig еða þig
 
0

Song Description:

edit soundcloud

SoundCloud:

edit soundcloud

More Seiðlæti lyrics

Seiðlæti - Eir
Hennar undur, geislar ástar Umbreyta öllu, í lifandi mér Ljósið í hjarta, dásamlega eilífð Opnar hún mér, með kossi lífs Sindrandi birta, jafnt daga sem nætur

Seiðlæti - Syn
Hún birtist opin, lifandi sannleikur Dyrnar opnar, algleymið er til Sannleika minn mér opinberar Líf mitt opið henni er Samtengir flæði, hringrásar minnar Lyftir mér

Seiðlæti - Jörð
Jörð Alua Hún kemur, eins og titrandi hlátur Af ánægju, umhverfið kippist við Fullhlaðin hlutum, í leiksins flæði Það er svo gaman, hún elskar mig Á

Seiðlæti - Snotra
Augu mín fá leyfi, til að sjá Það sem ósýnilegt er Allt lífið mitt, sameinast Hennar látprúðu tilvist Á vængjum hlutleysis, svíf ég Nakinn, med góðum gjöfum

Seiðlæti - Lofn
Fegurð hennar, í efninu birtast Sem slæða orku, umvefur allt Birtist í heimum, sýnileg öllum Góðmennskuljóminn, fyrir alla er Frjáls allra ferða, hvert sem er

Seiðlæti - Sága
Hún kemur sem töfrar, takmarkaleysis Í hringrás heimanna, hún óendanleg er Tár gleðinnar fljóta, húð mína væta Allt andrúmsloftið, leikvöllur minn er Hvar sem ég er, hvert

Seiðlæti - Vár
Hún heyrist í röddum, kristaltærum Allt umhverfið titrar, fyrirstaða enginn Hennar tónar mínir, allt í gegnum flæða Bylgjandi hreyfing, raddir mínar opnar Gosbrunnur

Seiðlæti - Bil
Opnaðu steinana Nýttu þér jurtirnar Hleyptu út dýrinu Ljósið fyrir ljósið Allt hennar flæði, kelar líkamann Augnabliksins, birtingu opnar Sýnir mér sigur, lengingu

Seiðlæti - Gná
Ég takmarka ekkert, enga hugsun Tek á móti, því sem ætlað er mér Beint í opin, kjarna ljóssins Þangað sem ekkert, ekkert auga sér Gnæfi ég yfir, hátt, ennþá hærra

Seiðlæti - Hlín
Uppfull mín orka, endalaus kraftur Gef ég mér ást, til að gefa þér Vatnið flæðir, volgt um mig alla Örugg er ég, móður minni í Aðdáun sú, sem lífið á skilið Gerir mig